Skilmálar
Almennt
Goðaborg ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis. Viðskiptavinum er óheimilt að endurselja vörur sem keyptar eru hjá Goðaborg ehf
Afhending vöru
Allar vörur eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun, lokað er um helgar. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Goðaborg ehf. ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að hún er send frá Goðaborg ehf. til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Kaupandi hefur 30 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna og henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum, upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Vörur sem hafa ekki innsigli fæst ekki skilað eða skipt. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd með innleggsnótu eða endurgreiðslu á kreditkort. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Kostnaður við endursendingu er á ábyrgð kaupanda. Vinsamlegast hafið samband við Goðaborg ehf með spurningar.
Skattar og gjöld
Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK. Uppgefin verð eru í ISK. Verð sem birtist í vefversluninni er ýmist með 11% eða 24% virðisaukaskatti, allt eftir gerð vöru.
Greiðslumáti
Í vefverslun Godaborg.is er boðið upp á;
Með greiðslukorti eða debetkortum: Viðskiptavinir fá senda staðfestingu þegar greiðsla hefur borist og pöntun verður send. Mögulegt er að greiða pöntun með Visa og Mastercard, kredit eða debet kortum.
Millifærslu í banka.
Varnarþing
Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur Goðaborgar á grundvelli ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.
Rísi ágreiningur milli aðila um efni þessara viðskiptaskilmála eða vegna brota á þeim má bera viðkomandi mál undir Kærunefnd þjónustu og lausafjárkaupa hjá Neytendastofu. Ef allt þrýtur er heimilt að reka mál vegna þessa fyrir Héraðsdómi Austurlands skv. ákvæðum laga nr. 91/1991.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Aðrar upplýsingar
Netfang: vinnsla.godaborg@gmail.com
Símanúmer: 848-1512
Sólvellir 25
760 Breiðdalsvík
Kt: 630913-1280
VSK Númer 115078
Banka upplýsingar 0515-26-630913
Öryggi
Það er öruggt að versla í vefverslun Godaborg.is. Greiðslur með greiðslukortum fara í gegnum örugga greiðslusíðu Valitor. Farið er með öll gögn og upplýsingar sem trúnaðarmál. Gögn og upplýsingar eru ekki afhentar til þriðja aðila