Refund policy
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Kaupandi hefur 30 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna og henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum, upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Vörur sem hafa ekki innsigli fæst ekki skilað eða skipt. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd með innleggsnótu eða endurgreiðslu á kreditkort. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Kostnaður við endursendingu er á ábyrgð kaupanda. Vinsamlegast hafið samband við Goðaborg ehf. með spurningar.